Ný síða www.123.is/stolt_islands
Stolti�?�?�?�??�?�?�â�?��?��?�?â�?� �?¢â�??¬â�??¢�
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 734541 dögum
14.12.2007 21:49:26 / Fanney

Ný síða !

Jáá mikið rétt komnar með nýja síðu :) hun er samt ekki komin í fullan gang en verður það eftir helgi þá koma nýjar myndir inn og svoleiðis:)

 

www.123.is/stolt_islands

tjekkið á henni ;) ef þessi linkur virkar ekki skrifið þá bara sjálf inn :S eikkva vesen i gangi...

kv. Stoltið 8)


» 1 hafa sagt sína skoðun

08.12.2007 18:41:30 / Fanney

Jól!!!!

BLEEEE Gleðileg jól

» 0 hafa sagt sína skoðun

14.10.2007 17:21:57 / Fanney

Dauð ??? Jjééés!

Já haha ætlaði bara að sega það augljósa hér að þessi síða er augljóslega að drepast en við erum samt ekki búnar ætlum að fá okkur 123.is síðu :) bráðlega held ég þegar við nennum bara í augnablikinu erum við ekki að nenna að hanga fyrir framan tölvuna að blogga og svoleiðis:S ætli maður sé ekki bara búnar að fá nóg eða vaxin uppúr því... en þessi síða er samt/vonandi ekki allveg dauð en ja ´she had her moments:) mikið búið að ganga á þessari síðu, gaman af þessu við munum samt alltaf vera Stoltið ;)...

erum í smá pásu !! :)

bleller

:):o:lol::|:S8):D:(;)8|:!::cry::evil::$:klikk::whut::haha::P:^):frown::):o:lol::|:S

- Stoltið


» 9 hafa sagt sína skoðun

08.10.2007 21:57:49 / Elísabet

nei hættiði nu alveg..

Bloggið mitt ennþá efst! og eg að fara blogga aftur! sjæse haha..

ég hef svo sem ekki frá miklu að segja bara var orðin þreytt á að sjá þetta blogg aftur og aftur þegar eg kom hingað inn á síðuna.. ætla að prófa að gera svona punkta blogg en ef eg þekki mig rett verða þessir punktar daldið lengra en oftast er séð :d but who gives ;)

- Mamma og co koma fra Spáni á miðvikudaginn, Hrafnhildur litla sæta er víst orðin svört í sólinni haha hlakka til að sja krúttið :D

- Búin að finna bíl, dökkgrænn toyota avensis ætla a reyna að koma honum á göturnar þegar mamma og maggi koma =)

- Helgin var frekar róleg en á laugardaginn skelltum við dagny og ásta okkur a cafe paris að heilsa uppá vin þeirra sem var barþjonn þar, vorum bara elegant á því að sötra daquiri (skrifað svona?) lentum í skemmtilegu atviki a heimleiðinni sem við erum ennþá ða hlægja af :D

- Tyllidagar í skólanum, fyrir þá sem ekki vita hvað það er, eru það svona tveir dagar þar sem eru bara allskonar viðburðir í skólanum og engin kennsla :D i dag til dæmis fór ég í stjörnuver, það var spáð fyrir mer í tarotspil og endaði svo á frumsýingu á the heartbreak kid :D og fæ mætingu fyrir þetta í skolanum þarf bara að mæta a 3 viðburði á dag af þú veist 20 eða einhvað! mjög skemmtilegt allt saman líka búið að skreyta allan skólan frá toppi til táar með svona Hollywood þema ;D svo er ball á þriðjudaginn :P gaman að þvi..

- Dagný var í bílprófinu sýnu líka bóklega og fékk druslan hvorki meira nei minna en NÚLL villur já þið lásuð rétt 0! en til hamingju með það sæta ;* hlakka til að runta með þer ;) sem verður sko ekkert lítið haha þannig bara brace yourself haha

- Styttist í löngu helgina líka, og afmælið hennar Dagný þá hehe, en Helga þú kemur er það ekki? plíís segðu já ég neita sko að þið 3 ætlið allar að beila á mer þarna! haha

já held að þetta sé bara allt það helsta sem ég ætlaði að segja, endum þetta á einni góðri frá explosm.net :D

Cyanide and Happiness, a daily webcomic
Cyanide & Happiness @ Explosm.net

Hahaha elska þetta!

Sakna ykkar ennþá óendanlega mikið stelpur ;** koss og knús til ykkar allra xoxo


» 4 hafa sagt sína skoðun

02.10.2007 12:36:08 / Elísabet

buenos dias!

já langaði eiginlega bara að deila því með ykkur að mín er komin með brumm brumm próf :D er það rosalega hip og kúl haha :D tók prófið í gær og stóð mig bara svona helvíti vel.. fékk svo fjallajeppan hans pabba lanaðan i gær sem er rauður með fuglum utan á ;D haha.. fékk nokkur hlatursköst á ljosum hugsandi hvað fólkið við hliðina á mer væri að hugsa eiginlega :D

ég sem sagt skellti mér a rúntinn með mörthu frænku og var það mjög gaman gatum reyndar bara verið tvær vegna mikils drasl i bilnum þannig að aftursætin eru uppi haha ja mjög spes allt saman! en eg stefni a að kaupa bil fljotlega reyndar buin að stefna að þvi freeekar lengi en nuna er eg að vonast eftir þvi að það gerist á meðan mamma er a spáni svo hun geti skrifað undir allt dæmið þegar hun kemur til baka og aður en hun fer vestur :D

Cyanide and Happiness, a daily webcomic
Cyanide & Happiness @ Explosm.net

ein svona í tilefni þess að það er alltaf rigning í reykjavik!

Annars er ekkert mikið að frétta meir anna og fanney er að mér skilst báðar hættar við að koma á l0ngu helginni til min :( en ég fæ allavega helgu mina vonandi :D svo er eg að spa í að koma fyrstu helgina í nóvember vestur til ykkar ;)

á helginni var ég að vinna en á laugardaginn fór ég í kveðjupartý til Huldu, mjög gaman þar fór á sníkjudjamm og fékk svona helviti mikið haha eftir partyið forum við í limmosíu :D ohh þa var ogeðslega gaman, geggjað svalar á þvi að runta niður laugarvegin a limmuni haha forum svo aðeins niðri bæ svo var eg orðin svo þreytt i fotunum í nýju skonum mínum sem ólina gaf mer i afmælisgjöf og er geeeeeðveikir, takk elskan ;** en ja eg sem sagt rolti heim og bara var sofnuð að eg held einhvað um half 5 leytið upp undir morgun :D

Cyanide and Happiness, a daily webcomic
Cyanide & Happiness @ Explosm.net

Veit ekki hvað ég á að segja ykkur meira er í landafræði tíma nuna og það er ogeðslega leiðinlegt það sem er alveg að bjarga mér nuna er www.explosm.net ohh þetta er mesta snilld sem eg veit um einsog þið sjaið :D

 

en eg segji þetta gott í bili

sakna ykkar allra

-Adios


» 2 hafa sagt sína skoðun

30.09.2007 14:32:18 / Fanney

Bonjour.

Já ákvað að blogga því ...tja ég hef ekki bloggað í soldinn tíma bara:) en nú er helgin liðin og það styttist óðum í þá næstu. þessi helgi var bara mjög fín!

Föstud: skóli, prison break, sofa, stúdíó & gott djamm með stelpunum

Laugard: (var eins og sunnudagur fyrir mér en skemmtilegur sunnudagur) Bærinn, borðað mikið nammi og mat, Video með Báru og Margréti, bærinn & djamm

Sunnud: Sofa út & vera uppí rúmi í allan dag.

En það er búið að ské margt í september mán

Busun & Busaballið, Elísabet og Matthildur áttu afmæli, svo átti google LÍKA Afmæli (8ára) mér finnst það merkilegt. google hefur reynst mér mjög vel gegnum árin.

svo skeði líka fl í þessum mán. ég sá snjókommu sem lætur mig fá einhvern hroll sem ég get ekki lýst. get ekki beðið þangað til allt verður þakið útí snjó!

Ég varð líka frænka! það finnst mér Gaman. Birta til hamingju aftur :* ég er stolt af þér

en nú er þessi mánuður á Enda þá segir það bara eitt útborgun. :) það finnst öllum gaman! ég fór í bankan um daginn og bað þau um að taka 20þús af laununum mínum í hverjum mán. til að spara fyrir næsta sumar. ég er strax byrjuð að hlakka til!! það verður svo geðveikt gaman. en ég verð að vera róleg, sumarið er eftir ár!

Ég var að hugsa...Stoltið á afmæli í endaðan október og bára á afmæli í byrjun nóv. þannig þetta er 2x skemmtun :D ég er spennt.

talandi um spenning þá verð ég að segja eitt. ég var að kynnast nýjum þættum...prison break þetta er svo spennandi ég hugsa varla um annað ...ég mæli með þeim! get ekki beðið eftir að fá seríu nr.2 hún á eftir að vera minn besti vinur næstu daga!hihi:D

En vá hvað tíminn líður hratt, mér líður illa útaf því. áður en maður veit af þá er maður komin á leiðinlega aldurin, hræðilegt alveg. En maður verður bara að gera gott úr því, lifa lífinu eins og vitleysingur og hafa góðar minningar! :haha: en jæja ég er bara byrjuð að tala um ekki neitt svo ég segji þetta gott í bili, ég verð að komast í blogg-gírinn aftur. Gleymdi hvað það var gaman að blogga.

Takk æðislega fyrir þessa helgi stelpur :* sé ykkur á morgun.

haha varð að láta þessa mynd fljóta með. ég á góðum lufsudegi í hvað .. 9junda bekk ég fékk að vera prinsessa. góðir tímar!


-Fanney-

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

27.09.2007 20:11:01 / Fanney

Á þetta bara að vera svona !"

Sorry en ég bara verð að tjá mig um skólayfirvöldin i skólanum okkar eru bara gjörsamlega buin að ganga yfir strikið !! á þetta í allvöruni að vera svona í vetur? böll á fimtudögum (b.t.w ég vill ekki fá einhvern reykviking commenta við þetta blogg um að böllin þeirra séu alltaf a fimtudogum! ) og hætti við öll ´"óþarfa" böllin eins og t.d leinivinaleikja ballið og.s.fr...... Guð ég veit ekki hvað ég geri ! þetta lið er allt saman bara á frussandia eilifðartúr ! þau eru baara búin að ganga yfir strikið í öllu ! fyrst þetta með busunina og svo þetta með óvissuferðina og smsinn er ekki 982734482347927 of langt gengið að það er búið að reka formann nemendaráðs útaf þessu !!! ég held að við þurfum bara öll að taka okkur saman og tala við Jón Reyni ! ég meina því fleiri sem kvarta og tala við hann útaf þessu því betur fer hann að átta sig á mistökunum !

það er bara búið að rústa félagslífinu okkar hérna með þessu ! búið að breyta öllu sem við erum vön og já þetta fólk er bara að koma framm við okkur eins og krakka ! allaveganna mer finnst og morgum öðrum eins og við eigum bara öll að standa saman í þessu og hætta að kenna nemendaráði um þetta allt saman þetta er bara okkar mál ekki bara þeirra.

-Anna pirraða !

 Jee :klikk:;)

» 14 hafa sagt sína skoðun

24.09.2007 21:48:15 / Elísabet

17 ára

jæja þá er maður víst orðin 17 ára =) get nu ekki sagt að eg se buin að finna mikið fyrir því þar sem eg er ekki enn komin með bílprófið því einsog glöggir tóku eftir í kommenti minu a seinasta bloggi er ökukennarinn minn halfviti og skráði mig ekki í prófið fyrr en 1. október þótt ég hafi ítrekað það við hann að ég vildi fá bílprófið á réttum tíma og byrjaði snemma hjá honum haldandi að það væri nægur tími en svo var víst ekki.. en ég vona þá bara að allt gangi upp á mánudaginn næsta, en einsog eg held einhverjir viti þá aðallega þið stelpurnar mínar að ég hef alltaf sagt að ég sé mjöööög stressuð að taka verklega ef eki bara stressaðari fyrir það en eg var fyrir bóklega haha hjálpar ekki að ökukennarinn segjir "ef þú gerir ekki þetta þá færðu alveg 12 villur" mjög hughreystandi allt saman :D en nóg um það..

 

Föstudaginn síðastliðin hélt ég afmælisparty í íbúðinni minni :D heppnaðist það svona helvíti vel, mæti ágætur fjöldi af fólki, fólk var ekkert að kvarta og ekkert var brotið né bramlað =) draslið var samt helvíti mikið daginn eftir haha.. en þa byrjaði að það voru bara við stelpurnar og svo byrjaði fólk að smalast inn, seinna meir byrjaði fólk svo að færa sig út fyrir á skemmtistaðina enda stutt að fara :D en þó var alltaf einhver inn þannig ég komst ekkert út haha.. svo kom Dagný bara aftur til mín eftir gott skemmtistaða rölt að mér skilst og crashaði hjá mer hún var í skemmtilegu ástandi þegar hun kom loksins haha gaman að því, en henni til mikillar óhamingju virðist sem að iPodinum hennar hafi verið stolið =/ sem eg skil nu ekki alveg því þetta er ekkert hinn flottasti iPod (no afens Dagný ;)) en eg vona að hann komist þó í réttar hendur =) en eg mun pottþett halda aftur party ef þau ætla að halda afram að vera svona vel heppnuð you bet ;) og ykkur stelpunum minum er að sjálfsögðu alltaf boðið ;*

 

Afmælisdagurinn fór nú ekki í mikið hehe, vöknuðum reyndar snemma eg og Dagný og fengum okkur einhvað snarl af því litla sem var til hérna hjá mer svo fór hun bara heim um 3 leytið, svo fór ég í ökutíma klukkan 5 þannig ég fekk einhvað að keyra á afmælisdaginn haha :D lame! svo klukkan 7 komu haukur, linda og afi að sækja mig því þau ætluðu að bjóða mér út að borða :D Afmælisgjafirnar mínar voru nu ekki margar þetta árið mamma og maggi ætla bara að gefa mér upp í bíl sem eg þarf nú að fara að drattast að kaupa mer veit bara ekkert hvernig ég vill, afi gaf mér 10 þus kr. gjafabréf í brim fyrir buxum, Linda og haukur gáfu mér nyja skólatösku sem mig bráðvantaði, svo fekk eg 5000 fra möggu ommu og amor amor ilmvatnið frá Dísu, Áróru og Gunnhildi takk fyrir það ;*

-Stelpur hvar eru gjafirnar frá ykkur ha?! missti eg kannski þau forréttindi þegar eg flutti suður :P nei nei ég er bara að grínast þið þurfið ekki að gefa mér neitt :D

 

Svo er langa helgin að fara að koma hja ykkur, Fanney ÞÚ KEMUR! haha vona að þið komið sem flestar til min svo ætla eg að fara að reyna að kíkja í heimsokn =)

svo eru mamma og maggi bara að fara skella sér til spánar í 2 vikur eg væri sko feitt til í að fara með en maður getur það víst ekki einsog svo margt annað =/

 

en á næstu helgi er víst vinnuhelgi hjá mer hlakkar ekkert voða til hehe en maður verður víst að vera duglegur til að fa einhverja peninga, sem eg a sko ekki mikið af þessa dagana skal ég segja ykkur alveg merkilegt hvað peningar fljúga bara frá manni og maður tekur ekkert eftir því. ég hefði sko alveg verið til í að djamma þessa helgina en nei það verður víst að bíða betri tíma =)

 

-ég nenni ekki að setja mynd með blogginu en Gunnhildur tók að ég held einhverjar myndir ur partyinu og eg er að vonast itl að geta fengið þær hja henni og skellt þeim kannski hingað inn :D

 

en stelpur sakna ykkar óendanlega mikið verið duglegar að láta heyra í ykkur ;**

Elska ykkur

-Elísabet 


» 7 hafa sagt sína skoðun

22.09.2007 12:51:09 / Fanney

Afmælis stelpa hér á ferð :D

Hún á afmæli í dag

Hún á afmæli í dag

Hún á afmæli hún Elisabet ! :D:D:D:D

HÚN Á AFMÆLI Í DAG ! :D

hipp hipp húrra ! :D

\"image\"

image

Sææææta !:*

Söknum þín ekkert smá :( farðu nú að koma í heimsókn.

EEEElskum þig :D kv restin af "stoltinu"

Allir að skilja eftir sætar afmæliskveðjur :D


» 13 hafa sagt sína skoðun

21.09.2007 20:09:09 / Katrín

London og fleira

Núna er akkúrat vika síðan ég var nýlent á flugvellinum í London! Og mér langar aftur :( Það var ógeðslega gaman og ég verslaði fyrir 97.000 :D Ég og Nonni fórum í Hamleys dótabúðina, Camden, Oxford street, Dýragarðinn og fullt meira! Ég fór í fyrsta sinn í subway (ekki samlokan, hoho) og rauðan tveggjahæðastrætó og svartan leigubíl. Sá mikið af skrítnu fólki og nokkrar Vicky Pollard týpur (little britain) Og einmitt þegar við fórum í dýragarðinn þá var víst "Gay Sunday" og við vorum einmitt svo heppin að lenda á honum :lol: En við vorum á einhverju 3ja stjörnu hóteli, sem þýðir ekki svo gott =/. Hótelið var í ööömurlegu hverfi við prufuðum að labba afturábak og áfram og hægri og vinstri en það var ekkert að sjá nema pöbbin "Fat Hog" eða einhvað álíka :$ Þannig að kvöldin fóru í sjónvarpsgláp og dominos át! sem var hinum megin við hornið :D En á daginn vöknuðum við klukkan 09:00 og vorum komin út eftir hálftíma í sól og 25° hita. Ferðin var mest bara verslunarferð og náðum við að kaupa okkur margt fínt :) Því miður gleymdist myndavélin heima, en ég keypti einnota myndavél úti og þið verðið bara að fá að skoða þegar hún er búin í framköllun. Ég náði meira segja mynd af skeggjuðu svíni.


» 0 hafa sagt sína skoðun

18.09.2007 01:10:30 / Elísabet

Nýtt look og hús á rúntinum :D

það er komin nýr dagur klukkulega séð þannig ég ætla að blogga en allir samt að lesa bloggið hennar önnu fyrir neðan ;)

Sossum ekki mikið í fréttum, ég á afmæli á laugardaginn :D hlakka doldið til og krossa fingur að eg verði búin að taka bílprófið :) ökukennarinn minn er einhvað tregur á að láta mig taka prófið =/ veit ekki hvort það er utaf mer eða hvað? en hey eg er buin að taka alla ökurimana þannig hann á í rauninni bara að láta mig taka prófið.. ég er samt kreisíness stressuð því það er einhvað svo stressandi finnst mer að keyra herna í stórborginni haha en það er bara fyrst :) eða það hef eg allavega heyrt svo hef eg heyrt lika að aðalmálið se bar aða læra að rata.. og það kemur nátturulega bara allt með kalda vatninu.. :) en eg læt ykkur vita þegar eg æ prófið so just stay tuned hehe :D

annað afmælistengt er að ég ætla að halda smá teiti á föstudaginn tl fagnaðar afmælisins =) er svona bæði og að halda það útaf því og hinsvegar til að kynnast fólkinu herna i borginni betur, er að ég held búin að bjóða doldið mörgum en það er bara betra:D svo er bara að sja hverjir mæta, pabbi ætlar að hjalpa mer að taka til í íbúðinni fyrir þetta og gera allt splikk og span svo lætur hann sig hverfa þegar gamanið byrjar :D hann er æði =D enda hluta til hans hugmynd sem er bara svalt haha :D

já það furðaði kannski einhverja að sjá hús á rúntinum í titlinum hja mer en þannig er mal með vexti að einhver hús herna i miðbænum á að rífa og það væri ekki frasögufærandi nema hvað að pabbi kom inní herbergið mitt aðan að spurja hvor tmig langaði ekki að sja hus keyra framhja husinu minu haha þetta fannst mer frekar fyndið og for fram er það bara ekki þetta tveggjahæða hus að beygja upp götuna hja mer :D haha er sem sagt verið að fær a það til að geta rifið það en svo var þetta ekkert mjög spennandi til lengdar því núna eru þeir bunir að vera 3 klukkutima eða einhvað að reyna að na beygjunni haha þeir hafa greinilega eh misreiknað sig greyjin en eitthvað stykki stendu rut þannig þeir na henni ekki alveg husið vaggandi til og fra og maður heyrir folkið ut sem er að horfa a af og til taka andköf þegar það heldu rða húsið sé að fara ða detta haha :D frekar fyndið allt saman.. ;)

hinsvegar var eg í klippingu í dag eða gær? klukkan er orðin tolf þannig klukkulega seð í gær hehe :D en eg fór sem sagt á rauðhettu og úlfinn og hann heitir sverrir sem klippti mig og litaði og bara vá hann er æðislegur :D ogeðslega skemmtilegur og bara goður hargreiðslumaður rosalega almennilegur og eg fer bara deffenitly þangað átti, eg for þangað til að athuga hvort eg ætlaði að halda afram haj gel gallery eða vera hja þeim og það er bara ekki spurning að eg fari aftur þangað! bara geðveikt anægð með þetta, reyndar pinu breyting og eg er ennþa að venjast þessu en eg kann bara vel við þetta annars :D hann var heldur ekki alveg nogu sattur með hvað harið mitt var einhvað dularfullt einsog hann kallaði það þvi það var stutt sum staðar en sitt a hinum stöðunum haha þannig hann setti svona dalitla "heild" á það hans orð allt haha :d en ætla að skella inn mynd af herlegheitunum og endilega kommentip hvort þetta er breyting til hins betra eða verra ;) verið bara hreinskilin eg fer ekki að grata haha :D


jájá þarna er herlegheitin =)

segjum þetta gott í bili

eitt enn samt það er bara merkilegt hvað eg get hlustað endalaust a eitt lag, búin að eiga þetta lag eg veit ekki hvað lengi og eg veit ekki hversu oft eg hef fengið æði fyrir því, aldrei aldrei fengið ógeð af því svo ogeðslega fallegt einhvað og ja ég elska það

-Vermillion part 2 - slipknot 

Elísabet-


» 13 hafa sagt sína skoðun

17.09.2007 10:51:59 / Fanney

Anna hér...

Jájá... er þetta ekki komið gott að kisubloggum hehe jú ekkert svoleiðis i bráð aftur ;)
En já annar þá er maður þessa dagana að reyna að gera lífið hérna á ísó fun tekst misvel bara
en svona í allvöruni þá er ekkert að gera hérna :s þetta er allaveganna bara svona living
for the weekend líf hjá mér og ég er að fríka út á því ! og líka afhverju var apó lokað ?
ekki það að það hafi alltaf verið eithvað crazy stuð þarna þá var fínt að hafa svona stað
til að fara á ef maður nennti ekki að tjilla heima og gera ekki rassgat, ???þannig já getur einhver sagt mer afhverju apó var lokað??? En já Helgin mín var bara fín :) nenni ekki að fara meira úti hana.. En já Óvissuferðin á víst að vera á næstu helgi og við stelpurnar erum flest allar að vinna en ég kæmist nenni bara ekki að fara ef við forum svona fáar þannig Hamraborgar fólk ef einhver af ykkur getur unnið fyrir stelpurnar það er að sega ef þið ætlið ekki...
Ég er bara byrjuð að vinna á fullu sem mer finnst skrítið þar sem eg var allan síðasta vetur
atvinnulaus aumingji ! eg er að vinna á helgum a Fernandos að þjóna og svoleiðis sem er bara mjög fínt svo er eg að fara vinna 3 í viku i bakaríinu, svo er það líka studioið og svo eftir
áramót eru það hestarnir:D og svo kemur bráðum snjór þá vill maður kikja uppá dal á bretti og svo er ég líka að fara æfa djassballet með Báru :S sjáum samt til með ætla allaveganna að purfa:)
Svo er ég að fara til karabiska hafsins með mömmu í februar :D djofull hlakkar mer til, það verður næææs. anyways ekki láta ykkur bregða ef þið sjáið mig keyra eins og 100 ára gamlan blindan mann því það er eitthvað brotið undir bílnum og eg þarf að keyra eins og kjelling :S heh.. Þetta er asnalegasta blogg sem ég hef skrifað á æfinni :S enda þetta á einni góðri mynd af dalnum :)

 ---------------------------------------------------------------------------------------------------------


» 1 hafa sagt sína skoðun

14.09.2007 16:20:40 / Fanney

....vó


Rakst á þessa mynd á netinu og brá nú heldur mikið! já fólk þetta er kettlingur...

-Helga Björk

» 5 hafa sagt sína skoðun

12.09.2007 12:20:41 / Katrín

Týnd Kisa

Snælda er búin að vera týnd í þrjá daga. Ef einhver hefur séð hana síðan þá, plís oláta mig vita hvar og hvenær. á msn eða hér á síðunni eða í síma 848-5001. Ég sakna hennar alveg voðalega mikið :(


» 16 hafa sagt sína skoðun

11.09.2007 22:06:30 / Fanney

Er fólk alveg tilfinningalaust!?:/

Var að frétta(vona að þetta sé ekki satt!) að strákur hérna í bænum hafi leikið sér að keyra á saklausan kettling og drap hann! fatta ekki hvernig fólk getur þetta, það er bara eitthvað að í hausnum á þvi! Okay þó eg sé á móti þvi, þá skil eg fólk sem drepur suma fugla og svona til matar en KETTLING!? maður verður bara svo reiður og hneykslaður þegar maður heyrir svona grimdarlegann hlut framinn....vona að flestir séu sammála með mér í þessu!

 -Helga Björk

 

 


» 8 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 31